Fjallaskíði fyrir alla!

Fjallaskíðun var stofnað 2016 og sérhæfir sig í fjallaskíðaferðum og fjallgöngum. Fjallaskíðun er í eigu Ingu Dagmar Karlsdóttur sem er sjúkraþjálfari, leiðsögumaður og ferðaskipuleggjandi með margra ára reynslu af fjallamennsku. Hjá okkur starfa mjög reynslumiklir og faglærðir leiðsögumenn. Flestir þeirra hafa sótt menntun sína hér innanlands hjá Félagi Íslenskra Fjallaleiðsögumanna (AIMG) og Landsbjörgu.

Við bjóðum uppá fjölbreyttar fjallaskíðaferðir, námskeið fyrir byrjendur á fjallaskíðum og fjallaskíðahóp sem er ætlaður vönu skíðafólki sem er að taka sín fyrstu skref í fjallaskíðun og fyrir þá sem vilja læra meira. Við leggjum okkur fram við að bjóða uppá drauma fjallaskíðaferðir og fagmennsku í leiðsögn.

Námskeið & fjallaskíðaferðir