UM FJALLASKÍÐUN

Fjallaskíðun var stofnað 2016 og sérhæfir sig í fjallaskíðaferðum og námskeiðum. Fjallaskíðun er í eigu Ingu Dagmar Karlsdóttur sem er sjúkraþjálfari, leiðsögumaður og ferðaskipuleggjandi með margra ára reynslu af fjallamennsku. Hjá okkur starfa mjög reynslumiklir og faglærðir leiðsögumenn og skíðakennarar. Flestir þeirra hafa sótt menntun sína hér innanlands hjá Félagi Íslenskra Fjallaleiðsögumanna og Landsbjörgu. Við bjóðum uppá fjölbreyttar fjallaskíðaferðir, fjallaskíðaámskeið, snjóflóðanámskeið og fjallaskíðahóp sem er ætlaður vönu skíðafólki sem er að taka sín fyrstu skref í fjallaskiðun og fyrir þá sem vilja læra meira.

Við leggjum okkur fram við að bjóða uppá drauma fjallaskíðaferðir og fagmennsku í leiðsögn.

Fjallaskíðaferðir & Námskeið | Fjallaskíðun