Lýsing
Birnudalstindur
Birnudalstindur (1326m) er hluti af glæsilegum fjöllum sem ná frá Breiðamerkurjökli að Skálafellsjökli í Suðursveit. Af toppi Birnudalstinds er ein lengsta og skemmtilegasta skíðabrekka landsins.
Til þess að fara í þessa ferð þarftu að vera í góðu líkamlegu formi og hafa gott vald á fjallaskíðum.
Gisting, kvöldmatur og akstur er á eigin vegum. Gist er eina nótt fyrir og eftir ferð á Hala eða Gerði í Suðursveit.
Fjöldi þátttakenda
Minnst 8, mest 20.
Skíðaleiðin
Það er misjafnt hvort við hefjum ferðina við Jöklasel og skinnum upp Skálafellsjökul eða hvort við förum upp frá Staðardal og skinnum upp Birnudal. Stundum þarf að ganga á mannbroddum og með skíðin á bakinu upp síðasta spölinn á toppinn. Þá tekur við frábær skíðabrekka niður eftir Birnudal að snjólínu sem liggur oftast í 400-600 m hæð.
Tölulegar upplýsingar
Vegalengd: 14-16 km
Hækkun: 800 m
Lækkun: 1.400 m
Ferðatími á skíðum: 6-8 klst.
Verð: 49.900kr
Dagsetning: 23. maí 2026 – frestað út af veðri
Bókun
Sendið fyrirspurn ef þið viljið bóka þessa ferð aðra daga en hér eru tilgreindir (lágmarksfjöldi er fimm manns).
Útbúnaðarlisti er sendur út fyrir brottför










Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.