Tröllaskagi – Þyrluskíðun

Tímalengd:
2 dagar
Transport:
Á eiginn vegum
Tegund ferðar:
Fjallaskíðaferð
Fjöldi:
Lágmarksfjöldi 10, hámarksfjöldi 20
Erfiðleikastig
Miðlungs
Fyrir hvern
Alla sem eru vanir á fjallaskíðum

49.900 kr.

Á Tröllaskaga eru afar fjölbreyttar og miskrefjandi brekkur við allra hæfi í fallegum fjöllum. Margir fjallstindar eru meira en 1.000 m yfir sjávarmáli svo oft er löng skíðabrekka framundan og sums staðar er hægt að skíða alla leið niður í fjöru. Fjallaskíðaferð á Tröllaskaga reynir bæði á úthald og skíðatækni og er krefjandi á köflum.
Þú þarft að vera í góðu líkamlegu formi og hafa gott vald á utanbrautar skíðum til að fara í þessa ferð.
Discount:
- kr.
Dagsetning:
  • maí 23, 2026
Flokkur:

Special offer

kr. per adult
From
No limit To No limit
Condition
Number adult >=

Lýsing

Tröllaskagi

Á Tröllaskaga eru afar fjölbreyttar og skemmtilegar brekkur við allra hæfi. Margir fjallstindar eru meira en 1.000 m yfir sjávarmáli svo oft er löng skíðabrekka framundan og sums staðar er hægt að skíða alla leið niður í fjöru. Fjallaskíðaferð á Tröllaskaga reynir bæði á úthald og skíðatækni og er krefjandi á köflum. Þú þarft að vera í góðu líkamlegu formi og hafa gott vald á skíðum til að fara í þessa ferð.
Fjöldi þátttakenda: minnst 10, mest 20
Dagsetning: 22-24. maí 2026
Lýsing
Það er löng helgi framundan, Hvítasunnuhelgin. Við leggjum af stað frá Reykjavík á föstudegi og komum aftur í bæinn á mánudegi. Ferðin er tveir gædaðir dagar. Gist er á Siglufirði. Þátttakendur bóka sjálfir hótelgistingu og akstur er á eiginn vegum.
Skíðaleiðir
Fjölmargar spennandi fjallaskíðaleiðir eru á Tröllaskaga. Við veljum alltaf leiðir út frá veðri og bestu aðstæðum hverju sinni. Nánara skipulag er sent út fyrir brottför.
Þyrluskíðun
Boðið verður upp á þyrluskíðun (toppaskutl) fyrir þá sem það vilja í einn dag. Þyrluskíðun er alveg einstök upplifun og skemmtileg viðbót við fjallaskíðabröltið. Hvaða fjallstoppar verður flogið kemur í ljós þegar nær dregur ferð. Sama gildir um verðið. Þetta er tækifæri sem þú vilt ekki missa af!
Innifalið í verði
Leiðsögn og skipulag.
Ekki innifalið í verði
Gisting, þyrluskutl, matur og akstur er á eigin vegum.
Hvað þarf ég að taka með?
Útbúnaðarlisti er sendur út til þátttakenda fyrir brottför.
Afbókunarreglur
Ef ferð er afbókuð sjö dögum fyrir brottför fæst 80% fargjalds endurgreitt. Þremur dögum fyrir brottför er 50% gjalds endurgreitt. Afbókun ferðar með styttri fyrirvara en þremur dögum fæst ekki endurgreidd. Staðfestingargjald er ekki endurgreitt.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Tröllaskagi – Þyrluskíðun”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *