Snæfellsjökull

Tegund ferðar:
Dagsferð
Fjöldi:
Lágmarksfjöldi 6, hámarksfjöldi 20
Erfiðleikastig
Auðveld
Fyrir hvern
Byrjendur jafnt sem vana

19.900 kr.

Snæfellsjökull er 1446m hár og er mjög skemmtilegur að skíða. Langt fram eftir vori og snemm sumars er oft hægt að skíða jökulinn ef snjóalög eru hagstæð.

Discount:
Dagsetning:
  • apríl 23, 2026
Flokkur:

Special offer

Lýsing

SNÆFELLSJÖKULL

Snæfellsjökull (1446 m) er mjög skemmtilegur og auðveldur að skíða ef aðstæður eru góðar. Langt fram eftir vori og snemmsumars er hægt að skíða jökulinn ef snjóalög eru hagstæð. Akstur frá Reykjavík á Snæfellsnes og til baka er á eigin vegum.

Fjöldi þátttakenda:
Minnst 8, mest 20.

Skíðaleiðin:

Algengasta leiðin er frá Stapafelli en einnig er hægt að ganga upp frá Dagverðará. Þegar á jökul er komið er gengið er í línu uppá topp. Þegar toppi er náð er stundum hægt ef aðstæður leyfa, að ganga á mannbroddum og með ísexi á Miðþúfuna sem er hæsti tindurinn á jöklinum. Sumir bera skíðin áleiðis þar upp og skíða niður bratta þúfuna.

Verð: 19.900kr

Tölulegar upplýsingar

Vegalengd: 12-16km

Ferðatími á skíðum: 5-7 klst.

Heildarhækkun: 1100 m

Hvað þarf ég að taka með?

Útbúnaðarlisti er sendur til þátttakenda fyrir brottför.

Bókun

Sendið fyrirspurn á netfangið info@fjallaskidun.is ef þið viljið bóka þessa ferð (lágmarksfjöldi fimm manns). Hvort ferð er farinn veltur á veðri og snjóalögum.

Afbókunarreglur

Ef afbókað er sjö dögum fyrir brottför er 80% fargjalds endurgreitt. Þremur dögum fyrir brottför er 50% fargjalds endurgreitt. Afbókun ferðar með styttri fyrirvara en þremur dögum fæst ekki endurgreidd. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt þótt afbókað sé.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Snæfellsjökull”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *