Lýsing
Snæfellsjökull er 1446 metra hár og er mjög skemmtilegur og auðveldur að skíða. Langt fram eftir vori og snemmsumars er oft hægt að skíða jökulinn ef snjóalög eru hagstæð.
Fjöldi þátttakenda:
Minnst 6, mest 30.
Skíðaleið:
Algengasta leiðin upp á topp er frá Stapafelli en einnig er hægt að ganga upp frá Dagverðará. Þegar á jökul er komið er gengið er í línu uppá topp. Í hverri línu eru 9 manns (einn leiðsögumaður og átta þátttakendur) og miklu máli skiptir að hópurinn sé samstíga í ferðahraða og ferðavenjum (fatastopp, matar-pásur ofl.) Þegar toppi er náð er hægt að ganga á mannbroddum og með ísexi á Miðþúfuna sem er hæsti tindurinn á jöklinum. Sumir bera skíðin áleiðis þar upp og skíða niður bratta þúfuna.
Tölulegar upplýsingar
- Vegalengd: 12-16km
- Ferðatími: 6-8 klst.
Heildarhækkun: 1200-1400m
Hvað þarf ég að taka með?
TILBOÐ
Það er 25 % afsláttur af fjallaskíðaferð á Snæfellsjökul með kóðanum fjallaskidi25. Gildir til 1. desember.
Afbókunarreglur
- Ef ferð eða námskeiði er aflýst vegna Covid-19 fæst allt endurgreitt
- Viku fyrir brottför er ferð endurgreidd að frádregnu 20% staðfestingargjaldi.
- Þremur dögum fyrir brottför er 50% fargjalds endurgreiddur.
- Afbókun ferðar með styttri fyrirvara en þremur dögum fæst ekki endurgreidd.
- Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt þótt afbókað sé.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.